Nýlega var gróðurveggurinn í Stúdentakjallaranum yfirfarinn og lagfærður. Eldri plöntur voru klipptar og dauðar endurnýjaðar. Sett var handrið neðst við vegginn til að verja hann gegn skemmdum og álagi. Veggurinn er sá elsti sinnar tegundar á Íslandi og er um 16 m2 að stærð. Í veggnum vaxa u.þ.b. 380 plöntur af mörgum tegundum. Ragnhildur Skarphéðinsdóttir hannaði vegginn á sínum tíma en framleiðandinn er hollenskur https://www.copijn.nl/. Veggurinn hefur tekið töluverðum breytingum á síðastliðnum árum hvað tegundir snertir. Í dag er mikið af friðarlilju, mánagulli, gullburkna o.fl. tegundum í veggnum. Mesta gróskan er ofarlega í veggnum þar sem birtan er meiri og rakastig betra. Í neðsta hluta veggjarins er veggurinn blautari og birtan minni og að auki verður sá hluti fyrir hnjaski þegar gestir sitja of nálægt veggnum. Gróðurlýsing er ofan við vegginn sem lýsir utan opnunartíma í ca. 12 klst. á sólarhring.


